Annar hluti kvikmyndar Erlendar Sveinssonar um píslargöngu Thors heitins Vilhjálmssonar til Jakobsborgar á Spáni, Draumurinn um veginn, verður sýndur í Bíó Paradís dagana 15.-25. apríl. Ennfremur verður fyrsti hlutinn endursýndur nú á föstudag og laugardag. Myndin er alls í fimm hlutum en þó er hver þeirra sjálfstæð kvikmynd á sinn hátt. Vonir standa til þess að þriðji hluti myndarinnar verði frumsýndur í sumarbyrjun en tveir síðustu næsta haust. Sjá nánar á http://bioparadis.is/