Kvikmyndafyrirtækið Pegasus tryggði sér í vikunni kvikmyndaréttinn á Garðinum, dularfullri draugasögu Gerðar Kristnýjar sem kom út hjá Máli og menningu árið 2008. Bókin er ætluð lesendum frá 11 ára aldri en hún var valin besta barnabók ársins 2008 af bóksölum og er tilnefnd til Vestnorrænu barna- og unglingabókaverðlaunanna árið 2010. Reynir Lyngdal mun leikstýra myndinni en vinna við handrit hennar hefst innan tíðar.
Sagan greinir frá stúlkunni Eyju sem er nýflutt í annað hverfi. Henni bregður þegar hún lítur út um gluggann á nýju íbúðinni því hinum megin við götuna breiðir gríðarmikill kirkjugarður úr sér, fullur af legsteinum og krossum. Þvílíkir nágrannar! Þó verður ástandið fyrst svart þegar pabbi hennar kaupir brúna leðurstólinn í antíkbúðinni niðri í bæ. Foreldrum hennar finnst hann algert æði en Eyja finnur strax að stólnum fylgir eitthvað sem er óvelkomið inn á heimilið – eitthvað vont. Í nýja skólanum kynnist Eyja skemmtilegum stelpum en allra bestur er Sölvi – strákurinn sem er kannski vinur og kannski kærasti og kannski í 10. bekk.
Þess má geta að þýskir útgefendur slógust um þarlendan útgáfurétt á bókinni og stóð sú rimma í marga daga – hnossið hneppti Berlin Verlag og kemur Der Garten því út á þeirra vegum. Bókin hefur aukinheldur verið seld til Noregs.