Ólafur Gunnarsson

Dimmar rósir til Noregs

Útgáfuréttur á bók Ólafs Gunnarssonar, Dimmar rósir, var nýverið seldur til Noregs. Bókin verður gefin út af forlaginu Bokvennen í Osló. Dimmar rósir komu út á Íslandi árið 2008 og fékk bókin gífurlega góðar viðtökur. Dimmar rósir er stórbrotin og áhrifarík skáldsaga sem fléttar örlög fjölskyldna saman með óvæntum hætti – saga sem lét engan ósnortinn á Íslandi og verður spennandi að sjá hverjar viðtökur Norðmanna verða.

Íslendingar geta líka hrósað happi enda er von á nýju efni frá stórskáldinu á næstu vikum. Um er að ræða fyrsta smásagnasafn Ólafs en hann er kunnugur fyrir sínar stóru skáldsögur. Ólafur leikur á ýmsa strengi í smásögum sínum og er alveg víst að meistaraverk kemur við sögu.




INNskráning

Nýskráning