Denise Epstein kom til Íslands til að kynna Franska svítu, bók móður sinnar Irene Nemirovsky, á Bókmenntahátíð í síðustu viku. Hún kom ásamt ævisagnaritara móður sinnar, Olivier Philipponnat, og voru þau bæði gjörsamlega heilluð af landi og þjóð. Fyrir utan að stunda annasama dagskrá Bókmenntahátíðar fóru þau í Bláa lónið og Gullna hringinn vinsæla. Þau voru hæstánægð með móttökurnar sem þau fengu og ekki síður þær móttökur sem Frönsk svíta hefur fengið hjá Íslendingum.
Frönsk svíta hefur fengið gífurlega góða dóma hjá gagnrýnendum hér á landi sem kemur ekki á óvart miðað við móttökurnar sem bókin hefur fengið hvar sem hún er gefin út víðsvegar um heiminn. Skáldkonan hefur verið lofuð í hástert og bókin kölluð meistaraverk sem allir ættu að lesa.
Saga bókarinnar er einstök en hún var gefin út í Frakklandi rúmum sextíu árum eftir lát höfundarins. Iréne Nemirovsky var færð í útrýmingarbúðir nasista áður en hún náði að koma handritinu að bókinni til útgefanda og dætur hennar varðveittu það samviskusamlega í áratugi áður en hugað var að útgáfu. Denise Epstein þykir afar vænt um þessa bók þar sem þetta var það síðasta sem móðir hennar skrifaði áður en hún lést og því veigraði hún sér ekki við því að ferðast til Íslands og stunda menningarlífið í Reykjavík þrátt fyrir að vera komin á níræðisaldur.
Á myndinni er Denise Epstein ásamt þýðanda Franskrar svítu, Friðriki Rafnssyni.