Epstein

Denise Epstein látin


Denise Epstein, dóttir Irène Némirovsky, höfundar metsölubókarinnar Frönsk svíta, lést mánudaginn 1. apríl á heimili sínu í Toulouse í Frakklandi, 83ja ára að aldri.

Hún bjargaði handriti móður sinnar að Franskri svítu frá glötun og gekk frá því til útgáfu. Denise Epstein vann alla tíð hörðum höndum að því að halda minningu og verkum móður sinnar á lofti ásamt því að minna á hrylling helfararinnar. Denise Epstein kom hingað til lands haustið 2011 í boði Bókmenntahátíðar í Reykjavík til að kynna Franska svítu og skoða sig aðeins um á Íslandi. Hún var afar ánægð með ferðina og kynni sín af landi og þjóð, en að sögn ævisagnaritara móður hennar og vinar, Olivier Philipponnat, var Íslandsferðin hinsta ferð hennar til útlanda.

MYND: Denise Epstein ásamt Friðriki Rafnssyni þýðanda Franskar svítu við Árbæjarsafnið.

INNskráning

Nýskráning