Frakkar eru annálaðir smekkmenn, ekki hvað síst þegar kemur að góðum glæpasögum. Það er því sérlega ánægjulegt hversu mjög þeir hafa hrifist af spennusögu Árna Þórarinssonar, Dauða trúðsins. Bókin, sem kom út í október s.l. undir franska heitinu Le Dresseur d’insectes, hefur nú selst í ríflega 22 þúsund eintökum þar í landi og trónir hátt á vinsældalista glæpasagnanna. Hæst flaug hún í níunda sætið yfir mest seldu spennubækurnar en höfundurinn keppir við ekki minni spámenn enn Dan Brown, Henning Mankell, Camillu Lackberg og Dashiell Hammett – að ógleymdum Arnaldi Indriðasyni.
Það er ekki að undra að Dauði trúðsins sé vinsæl enda hefur hún fengið frábæra dóma gagnrýnenda í Frakklandi. Skríbent dagblaðsins La Marseillaise skrifaði til að mynda að sagan væri „…harkaleg samfélagsgagnrýni í skarpskyggnri og íronískri umfjöllun“ og kollegi hans á vefsíðunni Bibliosurf.com hrósaði henni í hásert og sagði hana „gott úrræði gegn deyfð og drunga“, en slíkt hlýtur að teljast kærkomið í skammdeginu beggja vegna Atlantsála.
Verið er að þýða nýjustu bók Árna Þórarinssonar, Sjöunda soninn, á frönsku og kemur hún út í Frakklandi síðar á árinu.