Hallgrímur Helgason

Dásamleg kerling segir frá

Danskir gagnrýnendur hafa fallið flatir fyrir Konunni við 1000° eftir Hallgrím Helgason sem kom út nýlega hjá Lindhardt og Ringhof í snilldarþýðingu Kims Lembek. Eins og vel á við er sögunni bæði líkt við eldfjöll (Jørgen Johansen / Berlingske. fimm stjörnur) og bókmenntalegt sprengiefni (Frank Sebastian Hansen / Extra Bladet, fimm stjörnur), hún er sögð hnífskörp (May Schack / Politiken, fjögur hjörtu) og umdeildur hápunktur í íslenskum bókmenntum (Klaus Rothstein / Weekendavisen, engin stjörnugjöf).

Allir eru gagnrýnendurnir sammála um að Hallgrímur eigi fylilega skilið að fá Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir söguna en þau verða veitt á næstunni. „Haldiði kjafti hvað þetta er æðisleg skáldævisaga,“ segir Marie Louise Wedel Bruun í Elle sem velur Konuna við 1000° sem bók mánaðarins. Marianne Koch gefur bókinni fimm stjörnur í Fyens Stiftstidende og mælir heilshugar með henni. Liselotte Wiemer í Kristeligt Dagblad öfundar Kim Lembek af að hafa fengið að þýða bókina, það hljóti að hafa verið unaður fyrir fingurgómana að finna réttu orðin í stjórnlausum, eldspúandi heimi Hallgríms Helgasonar.

Mikael Busch gefur fjórar stjörnur í Jyllandsposten og segir að frásagnargleði Hallgríms sé stundum svo mikil að lesandinn taki andköf. Þetta sé nú öllu skemmtilegra lesefni en þunnu, blóðlausu heftin frá nemendum Rithöfundaskólans. „Hvílíkir hæfileikar!“ andvarpar Jens Henneberg í Nordjyske Stiftstidende, gefur fimm stjörnur og segir að lokum: „Þetta er hreint snilldarverk með óendanlega harmrænni tilvistarlegri vídd, lagt í munn dásamlegri kerlingu.“

Hallgrímur er tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir bók sína en þar á hann í harðri samkeppni, ekki aðeins við hinn íslenska höfundinn sem tilnefndur er, Guðmund Andra Thorsson, heldur ýmsa stóra norræna höfunda. Samkeppnin er óvenju spennandi í ár.

INNskráning

Nýskráning