Áhugamenn um glæpasögur í Bandaríkjunum hafa mánuðum saman talað um danska bók sem samt er nýkomin út. Á bloggsíðum, í leshópum og meðal gagnrýnenda hefur verið rætt endalaust um skáldsöguna Barnið í ferðatöskunni eftir Lene Kaaberbøl og Agnete Friis. Og nú er svo að sjá sem orðsporið hafi náð til fjöldans þó að bandarískur almenningur sé annars lítt móttækilegur fyrir erlendum bókum. Bókin kom út fyrir viku og nú þegar hafa 100.000 eintök selst upp þannig að verið er að prenta annað upplag. Dönsku stöllurnar eru á þessari stundu númer fimm á metsölulista glæpasagna á eftir stórstjörnum eins og Sue Grafton, James Patterson og Michael Connelly – og á undan Stieg Larsson.
Soho Press dreifði 3000 kynningareintökum af bókinni fyrirfram til valdra aðila og uppsker nú árangur þess. Geysilega góðir dómar um bókina birtust í öflugum bóksalaritum eins og Publishers Marketplace og Publishers Weekly og í haust var Lene Kaaberbøl og Agnete Friis boðið á Bouchercon World Mystery Convention sem er stærsta glæpasagnaþing í heimi með 700 höfundum.
Eins og íslenskir lesendur vita er aðalpersóna bókarinnar hjúkrunarkonan Nina Borg og munu bandarískir lesendur og gagnrýnendur vera sérstaklega ánægðir með hvað konur eru sterkar persónur í bókinni. Þeir eru líka hrifnir af því hvernig sagan er byggð upp út frá ólíkum sjónarhornum. Þetta þykir ekki óvenjulegt á Norðurlöndum en Ameríkönum finnst þetta mjög flott, að sögn Lenu.
Hér heima kom Barnið í ferðatöskunni út strax í fyrra og í ár kom út önnur bók þeirra, Hægur dauði sem líka hefur fengið afar góðar viðtökur. Þriðja og síðasta bókin í seríunni, Næturgali deyr, er nýkomin út á dönsku og væntanleg á íslensku snemma næsta ár.
Þær stöllur eru síður en svo einu norrænu glæpasagnahöfundarnir á markaði í Bandaríkjunum. Sá sterkasti er Svíinn Henning Mankell sem ruddi brautina fyrir aðra Norðurlandabúa eins og Arnald Indriðason, Stieg Larsson og Jussi Adler-Olsen svo bara fáeinir séu nefndir.