Ævisaga Halldórs Guðmundssonar um Nóbelskáldið fær fádæma góðar viðtökur hjá frændum vorum Dönum. Gagnrýnendur dönsku blaðanna ausa hana lofi og strá stjörnum og hjörtum í bland.
Fyrirsögn dagblaðsins Berlingske Tidende var „Hið bókmenntalega eldfjall“ og fékk bókin þar fimm stjörnur af sex mögulegum hjá gagnrýnandanum Per Krogh Hansen: „Halldór Guðmundsson er vel skrifandi. Rithátturinn er svalur og raunsær, staðgóður og vel studdur heimildum.“ Í Politiken skrifar May Schack að ævisagan sé „einstaklega vandlega unnin og vel skrifuð“ og gefur henni fimm hjörtu af sex. Kollegi hennar á Jótlandspóstinum hrósar nákvæmni höfundarins og þeirri minnistæðu mynd sem hann dregur upp af viðfangsefni sínu. Þar rignir líka fimm stjörnum af sex. Dorris Ottesen skrifar fyrir Kristilega dagblaðið og segir bókina mikilvægt norrænt menningarframlag: „Þetta er bæði afar vel skrifuð, sérlega skipulag og mjög grípandi bók um fyrirbærið Halldór Laxness.“ En landi hennar Torben Wendelboe sem miðlar upplýsingum fyrir dönsku bókasöfnin lýsir því yfir að hér sé komið „aðdáunarvert og heillandi lykilverk um einn af minnisstæðustu fulltrúum heimsbókmenntanna…“
Útgefandi bókarinnar í Danmörku er forlagið Vandkunsten.