Bankastræti núll, nýjasta bók stórskáldsins Einars Más Guðmundssonar, kom út í Danmörku á dögunum og hefur fengið prýðilega dóma þar í landi. Í Berlingske Tidende er talað um trú Einars Más á bókmenntirnar „sem vopn í baráttunni gegn innihaldsleysi og tómhyggju.“ Gagnrýnandi Information tekur undir þessi orð og segir að „bókmenntir og listir séu besta vörnin gegn þeim ærumissi sem Ísland og önnur lönd hafa liðið á þessum krepputímum.“ Í Politiken er talað um Bankastræti núll sem „prýðilegt ólyfsseðilsskylt lyf handa öllum sem eru með verki í vasanum eftir berserksgang fjármálafurstanna í Evrópu.“
Bankastræti núll hefur undirtitilinn „sögur úr veruleikanum.“ Viðfangsefni bókarinnar er þrenning bókvitsins, vervitsins og siðvitsins og hvernig henni hefur verið sundrað, ofurvald fjármálaheimsins, afþreying og reyfarar, eldfjöll, bankar og byltingar.