Danski kvikmyndaframleiðandinn Miso Film hefur keypt réttinn á skáldsögu Hallgríms Helgasonar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, og hyggst gera eftir henni kvikmynd á ensku sem tekin verður hér á landi. Leikstjórinn Kasper Barfoed er ungur að árum en á þó að baki þrjár kvikmyndir í fullri lengd og vinnur nú að sinni fyrstu mynd vestan hafs, The Numbers Station, með John Cusack og Malin Akerman í aðalhlutverkum.
Skáldsagan 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp kom út hjá JPV haustið 2008 og hefur síðan notið velgengni víða um lönd, en hún hefur nú verið þýdd á 8 evrópumál og er væntanleg á kóresku. Þá er bókin ein af þeim tíu íslensku skáldsögum sem væntanlegar eru á ensku á vegum Aamazon fyrirtækisins.
Sagan um króatíska leigumorðingjann Toxic sem kemur til Íslands í gervi sjónvarpspredikara hefur heillað fleiri en kvikmyndagerðarmenn. Í nóvember n.k. frumsýnir Borgarleikhúsið í Salzburg leikverk byggt á bókinni og þá túrar þýski leikarinn Uwe Ochsenknecht nú um Þýskaland og les upp úr bókinni við undirleik jasshljómsveitarinnar “The Toxic Truth”.
Þá verður þann 2. október n.k. sýnd austurrísk heimildamynd um rithöfundinn og myndlistarmanninn Hallgrím Helgason á þýsku sjónvarpsstöðinni 3sat, sem ber titilinn 10 ráð til að hætta að vaska upp og byrja að lesa íslenskar bókmenntir.