Í dag kemur út splunkuný bók eftir Jónínu Leósdóttur sem ber titilinn Léttir – hugleiðingar harmonikkukonu. Jónína hefur háð baráttu við aukakílóin frá því hún var unglingur og kallar sjálfa sig harmonikkukonu af því að hún blæs út og dregst saman á víxl. Einn daginn var botninum náð og hún ákvað að taka málin í sínar hendur, losna við aukakílóin og halda þeim í burtu.
Á meðan á þessu átaki stóð hélt Jónína dagbók sem spannar eitt ár, þar segir hún frá tilfinningarússibönum sem fylgja svona átaki, húmorískum hugleiðingum sínum um megrunarkúra og vandamálunum sem fylgja megrun eins og matseðlum á veitingastöðum og fatastærðum.
Dagbókin er í senn hvetjandi, fróðleg og fyndin lesning fyrir allasem einhvern tíma spá í línurnar.