Vísnabók Þórarins Eldjárn, Vísnafýsn, fær fyrirtaks einkunn hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins um helgina. Ingveldur Geirsdóttir skrifar um bókina og segir hana bæði skemmtilega og aðgengilega: „… ljóðabók sem allir ættu að hafa gaman af. Hún virðist einföld við fyrsta lestur en í gegnum hana liggur heill strengur og á bak við hverja stöku er heill heimur. Þetta er bók sem mallar heillengi í manni eftir á.“ Og þrjár og hálf stjarna í farteskið.