Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og lektor í barnabókmenntum við Háskólann á Akureyri, flytur erindi á vegum Félags íslenskra fræða á fimmtudagskvöldið kl. 20. Fyrirlesturinn nefnir hún Bókmenntaverkfræði og samgöngubækur – Um brúarsmíði og ferðalög barna til miðalda en þar ræðir hún um bókmenntaverkfræði út frá endursögnum sínum á Íslendingasögunum og nýjustu barnabók sinni Gásagátunni, sögulegri skáldsögu frá 13. öld. Rætt verður einnig um viðtökur barna við Íslendingasögunum og hvernig börn og fullorðnir geta gengið saman um hinar fornu slóðir bókmenntanna.
Erindið flytur hún í húsi Sögufélagsins í Fischersundi 3 og hefst dagskráin kl. 20, fimmtudaginn 25. febrúar.