Halldór Guðmundsson

Bréf Laxness til Ingu

Halldór Guðmundsson segir frá bréfum Halldórs Laxness til Ingibjargar Einarsdóttur á fræðslukvöldi Vinafélags Gljúfrasteins í kvöld, fimmtudagskvöldið 24. febrúar. Dagskráin hefst kl. 20 og er öllum opin . Bréf þessi koma brátt út á bók en útgáfu þeirra annast Halldór í félagi við Einar Laxness. Bréf þessi eru skrifuð á árunum 1927- 1939 og fylla hátt á þriðja hundrað blaðsíður. Lesendur þekkja flestir opinber skrif Halldórs, en í bréfunum birtast hugsanir hans áður en þeim hefur verið ritstýrt fyrir opinberan vettvang, metnaður hans nakinn, dugnaður og sjálfsagi, listræn viðhorf og pólitískar hugsjónir, og alltaf í baksviði samband hans og Ingu.

INNskráning

Nýskráning