Það er almennt viðurkennt að nýsköpun og skapandi hugsun séu drifkrafturinn að baki árangri fyrirtækja og einna verðmætustu eiginleikar leiðtoga á okkar dögum. Flest höfum við þó tilhneigingu til að afsala okkur sköpunarmættinum til „hinna skapandi“ – þeirra sem hafa myndlist, hönnun eða skriftir að lifibrauði. Við gleymum að sem börn vorum við öll skapandi; bjuggum til hluti úr leir og lituðum af ákefð. Þegar við vöxum úr grasi er hinn skapandi kjarkur dreginn úr mörgum okkar og við höldum okkur frekar á troðnum slóðum.
Í Sköpunarkjarki sýna Kelley-bræður fram á að skapandi hugsun er hugarfar, ákveðin aðferð við að hugsa, og lýsa því hvernig við getum tendrað sköpunarneistann innra með okkur. Við þurfum ekki öll að vera listamenn en við getum verið skapandi lögfræðingar, læknar, framkvæmdastjórar eða sölumenn.
Bræðurnir miðla reynslu sinni frá IDEO og d.school við Stanford-háskóla og nota dæmisögur til að sýna hvernig við getum sótt í hinn ótæmandi brunn skapandi hugsunar og ímyndunarafls þegar við tökumst á við hindranir. Sköpunarkjarkur fyllir okkur hugrekki til að hafa áhrif á umhverfi okkar og veitir innblástur; sýnir hvernig hægt er að flétta saman nýstárlegar hugmyndir og aðgerðir þannig að það auðgi fyrirtæki okkar, starfsferil og líf.
Tom Kelley, annar höfundur bókarinnar og einn eigenda IDEO, heldur fyrirlestur í Háskólabíó (Salur 1) fimmtudaginn 28. ágúst kl. 12-13. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Fyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Símann, Háskóla Íslands og Hönnunarmiðstöð.
„Fræðandi og mikilvæg bók fyrir alla sem vilja ná árangri og njóta vinnunnar sinnar.“
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri
„Stundum þarf að snúa öllu á hvolf til að finna bestu lausnina. Þess vegna er kjarkur til sköpunar besta veganesti sem hægt er að hugsa sér í leik og starfi.“
Halla Helgadóttir, framkvæmdarstjóri Hönnunarmiðstöðvar
„… ótrúlega upplýsandi bók sem knýr mann til að hætta að hjakka í sama farinu og byrja að skapa …“
Tim Koogle, fyrrverandi stjórnarformaður og forstjóri Yahoo
„Þessi bók breytti mér. Í Sköpunarkjarki má finna fágæta blöndu af leiðtogafræðum, innilegri sagnamennsku og hagnýtum æfingum sem nýtast fólki til að endurheimta ástríðu og hugrekki til að skapa.“
Dr. Brené Brown