Adam og Evelyn og Hægur dauði

Brakandi nýjar kiljur!

Kæru lestrarhestar – þyrstir ykkur í djúsí sögu? Ískrandi spennu eða kitlandi ástarsögu?

Örvæntið ekki. Það eru komnar nýjar kiljur.

Adam og Evelyn, ljúfsár skemmtisaga um ástina sem gerist í Austur-Evrópu sumarið 1989. Bókin gefur merkilega innsýn í tilfinningar fólks á þessum heimssögulegu tímamótum í gegnum parið Adam og Evelyn sem leita að Paradís. Er Paradís fyrir vestan? Og er Paradís Evelyn sú sama og Adams?

Hægur dauði, gríðarlega vel byggð spennusaga með söguþræði sem kemur sífellt á óvart. Nina Borg er hjúkrunarkona sem vill hjálpa innflytjendabörnum með einkennileg sjúkdómseinkenni en dregst inn í æsispennandi atburðarás sem hefur hrikalegar afleiðingar í för með sér. Þetta er önnur bókin um Ninu Borg, fyrsta bókin Barnið í ferðatöskunni er margverðlaunuð metsölubók sem sló í gegn á Íslandi á síðasta ári.


INNskráning

Nýskráning