Myndir frá Akranesi

Börn flóttamanna

Vegna framúrskarandi undirtekta verður haldinn aukafundur um málefni flóttamanna í fundaröð sem sett var saman vegna útgáfu hinnar vinsælu bókar Ríkisfang: Ekkertsem skrifuð er af Sigríði Víðis.

Á þessum aukafundi verður rætt við börn flóttamanna. Í aldanna rás hafa fjölmargir flóttamenn fengið skjól á Íslandi og hafa börn þeirra alist upp á Íslandi. Hvernig var flótti foreldranna og hvaða áhrif hafði hann á næstu kynslóð á eftir?

Anna Kristine Magnúsdóttir-Mikulcaková er þekkt blaðakona en færri vita að hún er dóttir flóttamanns frá fyrrum Tékkóslóvakíu. Foreldrar Tinnu  Davíðsdóttur, lyfjafræðings, flúðu hins vegar frá Víetnam. Þær segja frá flóttanum og sitja fyrir svörum. Fundastjóri verður Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur.

Fundurinn er í Odda, stofu 101, miðvikudaginn 30. nóvember kl. 12.25 – 13.20. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.

Ekki missa af þessum síðasta fundi í þessari mögnuðu fundaröð.

INNskráning

Nýskráning