Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að bóndadagurinn er á föstudaginn og margir sem vilja gleðja bóndann á heimilinu með fallegri gjöf. Það er hægt að finna rétta bók fyrir hvert tilefni. Eina sem þú þarft að spyrja þig er hvað bóndinn þinn vill fá og hvaða skilaboð þú vilt senda bóndanum.
Viltu gefa rómantíska og ljúfa bók?
Bókin Listin að elska er um mesta leyndardóm lífsins, nefnilega ástina. Er ástin heppni eða er hún eiginleiki sem við þurfum að rækta og hlúa að? Önnur bók sem bætir og eflir ástarsambandið er Hjónaband og sambúð, eftir séra Þórhall Heimisson. Bókin er byggð á vinsælum hjónanámskeiðum sem Þórhallur hefur haldið í fjöldamörg ár.
Viltu gefa spennandi bók?
Hrollvekjan Hugsaðu þér tölu svíkur engan sem hefur gaman af góðum spennusögum. Paganinisamningurinn er einnig þrælspennandi og heldur bóndanum föstum í rúminu þar til hver einasta blaðsíða er lesin.
Viltu gefa kitlandi bók?
Kynlífsbiblían er grundvallarrit um ástaratlot og leiðarvísir elskenda að frábæru kynlífi. Gjöf sem klikkar ekki og á heima á náttborðinu hjá öllum pörum. Í Litla Lostaboxinu er að finna tvær bækur; Handhægt súperflört og Handhægt súpersex frá drottningu dirfskunnar, Tracey Cox.
Viltu gefa tómstundabók?
Hvort sem áhugamál bóndans snýst um veiðar, martreiðslu eða útivist þá geturðu fundið réttu bókina handa honum. Í Veiðar á villtum fuglum og spendýrum er að finna flest það sem íslenskum skotveiðimönnum ber að kunna skil á. Ef áhuginn liggur frekar í útivistinni er Íslensk fjöll: Gönguleiðir á 151 tind algjör skyldueign. Í bókinni er fólki leiðbeint um gönguferðir á íslensk fjöll, sum alkunn og önnur minna þekkt. Ef bóndinn þinn vill frekar vera innandyra er tilvalið að gefa honum gæðamatreiðslubókina Góður matur – gott líf í takt við árstíðir þar sem er að finna leiðbeiningar um öflun og ræktun matvæla sem og uppskriftir að gómsætum réttum.
Fyrir utan þessar tilteknu bækur er að finna ótal bækur á Netmarkaði Forlagsins. Þar eru skáldsögur, handbækur og fræðibækur á frábærum tilboðum. Endilega kíktu á úrvalið og sjáðu hvort þú finnir ekki eitthvað sem passar akkúrat fyrir þinn bónda.