Nýlega voru veitt hin árlegu verðlaun starfsfólks bókaverslana. Ævisaga Gunnars Thoroddsen eftir Guðna Th. Jóhannesson var valin besta ævisagan, Þóra biskups eftir Sigrúnu Pálsdóttur, sú næst besta og Alvara leiksins (Gunnar Eyjólfsson) eftir Árna Bergmann sú þriðja besta. Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur var valin næstbesta skáldsagan og bók Braga Ólafssonar, Handritið að kvikmynd … sú þriðja besta. Hreinsun Sofie Oksanen var valin besta þýdda skáldsagan, Dávaldurinn eftir Lars Kepler sú næst besta og Gleðileikur Dantes hreppti þriðja sætið. Árstíðir Þórarins og Sigrúnar Eldjárn var valin besta barnabókin, bók Guðrún Helgadóttur, Lítil saga um latan unga var í öðru sæti og Ertu guð afi? eftir Þorgrím Þráinsson í því þriðja. Þú getur eldað var valin besta þýdda barnabókin og Töframaðurinn eftir Michael Scott sú næst besta. Loks var Blóðhófnir Gerðar Kristnýjar valin besta ljóðabókin og Brúður eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur var í þriðja sæti.
Við óskum höfundum innilega til hamingju með viðurkenninguna.