Þórunn Valdimarsdóttir var nýverið fulltrúi Íslands á Bókmenntahátíð Rúmeníu, Hátíð Óvidíusar, sem haldin er í Neptún við Svartahaf. Þátttakendur voru um 60 talsins héðan og þaðan úr heiminum en Þórunn var eini fulltrúi Norðurlandanna. Þema hátíðarinnar var „Ris og fall sögupersóna í fagurbókmenntum“ og voru flutt erindi á daginn en á kvöldin lásu þátttakendur ljóð en Þórunn flutti erindi um framtíð söguhetjunnar og las fjögur ljóð. Erindi þingsins munu svo einnig koma út á bók.
Við lok hátíðarinnar fluttu þátttakendur svo þýðingu sína á frægu erindi Óvidíusar sem að hljóðar svo í þýðingu Þórunnar:
Hér ég ligg sem lék við ljúfa ást,
ljóðskáld Naso, nár af viti mínu.
Vegfari … hafir þú elskað heitt
þá teldu ei eftir þér að segja hátt:
Megi bein hans Nasó ljúft þar liggja.