Föstudagskvöldið 17. maí verður alþjóðlega “upplestrarkeppnin” Literary Death Match haldin á veitingahúsinu Dolly, Hafnarstræti 4 (uppi). Samkoman hefst stundvíslega kl. 20.05 en húsið verður opnað klukkan 19. Á dagskránni eru fjórir rithöfundar sem munu lesa úr verkum sínum í sjö mínutur hver – eða skemur – og síðan munu þrír stjörnudómarar dæma verkin. Tveir höfundar verða valdir til að keppa til úrslita á lokakvöldi keppninnar. Aðgangseyrir er 1000 krónur.
Dómarar kvöldsins verða Kristín Ómarsdóttir sem metur bókmenntagildi textans, Bergur Ebbi Benediktsson sem metur framsögn og framkomu og Hugleikur Dagsson sem metur hið óræða og óáþreifanlega.
Rithöfundarnir sem koma fram eru Auður Jónsdóttir, Andri Snær Magnason, Kristín Eiríksdóttir og Kári Tulinius.
Literary Death Match er haldin í 36 borgum í tíu löndum. Stjórnandi keppninnar er Adrian Todd Zuniga. Keppnin er heillandi gagnvirk blanda af gamni og bókmenntalegri alvöru og samkvæmt Los Angeles Times er þetta “one of the most entertaining reading series ever” – eða einhver skemmtilegasta upplestrarkeppni sem til er!