Það verður hátíð í bæ um helgina þegar árleg bókamessa og sérleg uppskeruhátíð bókafólks fer fram í ráðhúsinu við Tjörnina. Dagana 23.-24. nóvember 2013 verður Bókamessa í Bókmenntaborg haldin í þriðja sinn. Messan verður sem fyrr í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem útgefendur sýna nýjar bækur og boðið verður upp á fjölbreytta bókmenntadagskrá. Húsið verður opið frá kl. 12:00 – 18:00 báða dagana.
Við hjá Forlaginu tökum fullan þátt í gleðinni! Höfundar munu fjölmenna, það verður spilaður fúsbolti, Vísinda-Villi ræðir heima og geima, Skoppa og Skrítla ætla að brosa sínu blíðasta, það verður prjónað og smakkað og spjallað og byggt úr Legó. Svo eitthvað sé nefnt! Einnig hvetjum við alla til þess að nýta tækifærið og senda uppáhaldshöfundinum sínum kveðju, koma við á básnum okkar og skrifa jólakveðju á kort sem við komum svo til skila.
Smelltu hér til að kíkja á dagskrána í heild sinni.