Bókamarkaður í Perlunni

Árlegur bókamarkaðurinn Félags bókaútgefenda í Perlunni hefst nk. föstudag, 19. febrúar. Opið er alla daga, jafnt virka daga sem um helgar, frá kl. 10?18 en markaðurinn stendur til 7. mars.

Allt frá því á sjötta áratug síðustu aldar hafa bókaútgefendur staðið fyrir sameiginlegum markaði þar sem eldri útgáfubækur eru boðnar á góðu verði. Táknmynd og lukkudýr markaðarins hefur lengi fyrir hinn glaðlyndi bókakarl sem hattprýddur skeiðar um götur og torg. Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda löngum verið besti staðurinn til að hafa yfirsýn yfir allt úrval fáanlegra íslenskra bóka, en 12.000 titlar hið minnsta eru til sölu á markaðnum.

Á markaðnum er nú mikið úrval bóka sem komu út á síðasta ári frá öllum útgefendum, en þetta úrval var aukið til muna fyrir tveimur árum.

Árlega koma ýmsar gersemar upp úr handröðum útgefenda, bækur sem taldar voru uppseldar fyrir löngu finnast innst í geymslu eða að gamlir lagerar horfinna forlaga eru dregnir fram. Bókamarkaðurinn býður því ekki aðeins upp á tækifæri til að gera góð kaup og byrgja fjölskylduna upp af frábærum bókum, heldur er hann skemmtilegur staður til að finna týndar perlur.

Vakin er athygli á því að í kjölfar markaðarins í Perlunni verður haldinn hinn árlegi bókamarkaður á Akureyri og stendur hann yfir páskana.



INNskráning

Nýskráning