Úrval nýrra bóka eftir íslenska höfunda er gífurlegt fyrir þessi jólin. Því er ekki seinna vænna að byrja á upplestrarkvöldum Forlagsins þar sem höfundar jólabókanna fjalla um og lesa upp úr bókum sínum. Upplestrakvöldin hafa fengið yfirskriftina Bókakonfekt enda er upplestur góðra bóka mikið eyrnakonfekt og boðið verður upp á konfekt til að maula, á meðan upplestrinum stendur.
Bókakonfekt verður haldið á Café Rosenberg, alls fjögur kvöld og munu 6-8 rithöfundar koma fram á hverju kvöldi.
Fyrsta Bókakonfektið verður á mánudaginn 31. október og byrjar dagskráin kl. 21.