Næsta miðvikudagskvöld verður annað kvöldið í kynningaröð Forlagsins, Bókakonfekt, haldið á Café Rosenberg en Bókakonfekt verður á dagskrá öll miðvikudagskvöld í nóvember. Dagskráin hefst kl. 20, jólakonfekt verður á borðum og hundrað fyrstu gestirnir fá drykk í boði hússins.
Höfundarnir sem kynna bækur sínar miðvikudagskvöldið 14.11 eru:
Ólafur Gunnarsson – Málarinn
Auður Jónsdóttir – Ósjálfrátt
Gunnar Helgason – Aukaspyrna á Akureyri
Anton Helgi – Hálfgerðir englar og allur fjandinn
Árni Þórarinsson – Ár kattarins
Sigurbjörg Þrastardóttir – Stekk
Kristjana Friðbjörnsdóttir – Reisubók Ólafíu Arndísar
Svavar Gestsson – Hreint út sagt