Hið árlega Bókakonfekt Forlagsins verður haldið alla miðvikudaga í nóvember en þar ætla höfundar að lesa upp úr verkum sínum, segja frá tilurð þeirra og sumir munu jafnvel fremja gjörninga. Café Rósenberg að Klapparstíg 27 hýsir kvöldin sem fyrr en þar myndast, sérstaklega á þessum árstíma, notalegt og hátíðlegt andrúmsloft.
Bókakonfekt undanfarinna ára hafa verið vel sótt og eru fyrir löngu orðinn fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugamanna. Hægt verður að versla bækur höfunda á Bókakonfekti.
Hefst kl. 20:00!
Fyrstu hundrað gestirnir fá frían drykk!
Aðgangur ókeypis!
Ertu á Facebook? Fáðu áminningu hér!
Dagskráin í nóvember er eftirfarandi:
20. nóvember
Edda Andrésdóttir – Til Eyja
Eiríkur Örn Norðdahl – Hnefi eða vitstola orð
Gunnar Helgason – Rangstæður í Reykjavík
Aðalsteinn Ingólfsson – Karólína Lárusdóttir
Andri Snær Magnason – Tímakistan
Reimleikar í Reykjavík
Óttar Norðfjörð – Blóð hraustra manna
27. nóvember
Stefán Máni – Grimmd
Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir – Stúlka með maga
Sveinn Einarsson – Kamban
Steingrímur Sigurgeirsson – Vín
Þórarinn Eldjárn – Grannmeti og átvextir
Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson – Draumsverð
Sjón – Mánasteinn
Vonumst til að sjá sem allra flesta!