Konfekt

Bókakonfekt á miðvikudag!

Þriðji í Bókakonfekti er á Café Rosenberg á miðvikudaginn. Þar halda Forlagshöfundar áfram að kynna bækur sínar, segja frá þeim og lesa upp úr þeim. Konfektskál er á hverju borði og frír drykkur fyrir fyrstu hundrað gestina.

Síðustu tvö kvöld hefur verið setið þétt á Rosenberg og stemningin frábær!

Höfundarnir sem koma fram á miðvikudaginn eru:


Bragi Ólafsson – Fjarveran

Kristín Helga – Grímsævintýri

Þórarinn Eldjárn – Hér liggur skáld

Gunnar Theodór – Steinskrípin

Jón Gnarr – Sjóræninginn

– hlé-

Jón Ólafsson – Appelsínur frá Abkasíu

Kristín Eiríksdóttir – Hvítfeld

Kjartan og Snæbjörn – Hrafnsauga

Einar Kárason – Skáld



INNskráning

Nýskráning