Fyrsta upplestrarkvöld Forlagsins, undir yfirskriftinni Bókakonfekt Forlagsins, fer fram í kvöld, mánudaginn 31. október á Café Rosenberg. Við hefjum leikinn í kvöld kl. 21; Hallgrímur Helgason les úr bókinni Konan við 1000°, Stefán Máni úr Feigð, Ragna Sigurðardóttur les úr Bónusstelpunni, Elín Hirst og Guðrún Ebba lesa úr Ekki líta undan og Haukur Ingvarsson úr Nóvember 1976. Arndís Þórarinsdóttir les út Játningum mjólkurfernuskálds, Bryndís Björgvinsdóttur úr Flugan sem stöðvaði stríðið og Gunnar Helgason úr Víti í Vestmannaeyjum. Sem sé veisla fyrir sálina, ókeypis aðgangur og fyrstu hundrað gestirnir fá frían drykk!