Edda Heiðrún Backman

Bókahátíð barnanna

Á Bókamessu í bókmenntaborg sem haldin verður um helgina verður margt skemmtilegt á dagskrá fyrir unga sem aldna. Aðalfjörið fyrir börnin verður í matsal á 1. hæð Ráðhússins (þeirri sem gengið er inn á) á sunnudaginn kl. 14 til 16. Þar kynna fjölmargir barnabókahöfundar nýjar bækur og hægt verður að reyna sig við að teikna skrímsli með Áslaugu Jónsdóttur, klippa út jólakrakka með Sigrúnu Eldjárn, lita Hvata hvolp með Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og margt margt fleira.

Allir gestir geta tekið þátt í getraun um nýútkomnar barnabækur og tíu heppnir fá barnabók að eigin vali í verðlaun.

Myndir Eddu Heiðrúnar Backman úr nýútkomnum bókum þeirra Þórarins Eldjárns verða til sýnis og Edda Heiðrún og Þórarinn koma og árita bækur  á svæði Forlagsins í Tjarnarsal Ráðhússins frá klukkan 13.30 á sunnudaginn.

Þá mætir Gunnar Helgason galvaskur til leiks á laugardaginn klukkan 16.15 og heldur vítaspyrnukeppni í Vonarstræti í tilefni af útgáfu bókar sinnar Aukaspyrna á Akureyri.

Það er því um að gera fyrir alla fjölskylduna að leggja leið sína í Ráðhús Reykjavíkur um helgina – kynna sér nýjar bækur og leyfa börnunum að bregða á leik.

INNskráning

Nýskráning