Höfundar

Bókafjör í Iðu um helgina

Jólafjörið er að finna í öllum helstu bókabúðum þessa dagana þar sem höfundar kíkja við og kynna verk sín með ýmsum hætti.

Það verður þétt dagskrá í Iðu á Lækjargötu um helgina. Á laugardaginn 15. desember verður hið stórskemmtilega Skrípó-spil kynnt kl. 14 og kl. 16 lesa rithöfundarnar Pétur Gunnarsson og Auður Jónsdóttir upp úr nýjum verkum sínum.

Á sunnudaginn 16. desember munu Brian Pilkington og Sigrún Eldjárn kynna bækur sínar kl. 15. Sigrún sýnir krökkunum Listasafnið og föndurbókina Jólakrakkar og Brian ætlar að mála jólasveinana sína.


INNskráning

Nýskráning