Í október næstkomandi verða liðin fimmtíu ár frá því Bókabúð Máls og menningar opnaði fyrst dyr sínar við Laugaveg 18 í miðborg Reykjavíkur. Verslunin er og hefur í húsinu við Laugaveg 18 verið einn af hornsteinum íslenskra bókmennta og íslenskrar menningar í hálfa öld.
Umfangsmikil afmælishátíð hefst í bókabúðinni í október og stendur fram til áramóta. Forlagið tekur þátt í hátíðarhöldunum og mun verðlaunahöfundurinn Bryndís Björgvinsdóttir fagna útgáfu bókar sinnar Flugan sem stöðvaði stríðið á laugardaginn í búðinni en bókin hlaut nýverið Íslensku barnabókaverðlaunin. Ýmislegt annað verður í boði og alveg víst að gleðin fær að ráða ríkjum þennan fyrsta dag af mörgum sem fagnað verður afmælinu í búðinni.