Markþjálfun

Markþjálfun – vilji, vit og vissa

Vilt þú vaxa og dafna í lífi og starfi, áorka meiru eða jafnvel bara læra að slaka á? Markþjálfun er aðferð sem styður fólk á öllum aldri við að finna tilgang sinn og lífshamingju, koma jafnvægi á lífið og ná meiri árangri í verkefnum sínum. Í amstri dagsins gleymist stundum að stoppa, líta inn á við og einbeita sér að því að vera í núinu.

Markþjálfun hjálpar þér að takast á við nýjar áskoranir, breytingar og að sjá tækifærin í nýrri og síbreytilegri hringiðu samfélagsins. Þó að markþjálfun snúist um að ná settum takmörum og fá sem mest út úr hverjum klukkutíma gerir hún það með að líta inn á við, hægja á og vinna markvisst að settum markmiðum.

Ef þú hefur áhuga á þróun og þroska sjálfs þíns, og annarra – eða mannkynsins alls, þá gætir þú haft bæði gagn og gaman af þessari bók.

Markþjálfun er fag sem hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Það kemur ekki á óvart því hér er unnið að því að byggja upp styrk og framfarir, bæði einstaklinga og hópa, á faglegan hátt.
Nú hefur verið bætt úr brýnni þörf því fyrsta bókin um markþjálfun á íslensku er komin út en það er bókin Markþjálfun – vilji, vit og vissa. Hér er fjallað um aðferðina, bæði á Íslandi og í alþjóðlegu umhverfi, nám í markþjálfun og aðferðir markþjálfa.

Höfundar Markþjálfunar eru Matilda Gregersdotter, Arnór Már Másson og Haukur Ingi Jónasson og hafa þau margþætta reynslu og þekkingu á sviði markþjálfunar og hafa m.a. kennt aðferðina og unnið með hana. Haukur Ingi hefur áður gefið út bækur hjá Forlaginu, ásamt Helga Þór Ingasyni, en það eru bækurnar Leiðtogafærni, Samskiptafærni, Skipulagsfærni og Stefnumótunarfærni.

INNskráning

Nýskráning