Bók sem breytir viðhorfum

„Um leið og bók Susan Abulhawa er grípandi skáldverk, að hluta til sjálfsævisögulegt, um líf þriggja kynslóða, ástir og missi, þá er hún fyrsta heildstæða sögulega verkið sem kemur út á íslensku um örlög palestínsku þjóðarinnar, um hernámið og landflóttann. Ég mæli eindregið með þessari bók,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína um bókina Morgnar í Jenín sem nýverið kom út í íslenskri þýðingu Ásdísar Guðnadóttur.

Bókin hefur vakið verðskuldaða athygli hér heima og víðar. Í þessu áhrifamikla verki veitir höfundurinn Susan Abulhawa lesendum innsýn í líf flóttafólks í Palestínu, gleði þeirra og raunir, og rekur sögu þriggja kynslóða. Í viðtali í Fréttablaðinu um helgina útskýrði hún m.a. áhrifamátt bókmenntanna og mikilvægi þeirra í andófinu gegn ríkjandi hugmyndum. „Palestínumönnum er svo ranglega lýst í vestrænum fjölmiðlum að fólk er hætt að líta á þá sem manneskjur. Ímynd fólks af Palestínumönnum er að þeir séu brjálaðir og ofstækisfullir. Bókmenntir búa yfir þeim töfrum að geta dregið hið mannlega fram í fólki. Með þeim er hægt að sýna fegurð fólks og menningar þess. Það er vegna þessa að bókmenntir eru öflugt mótstöðuafl. Það er erfiðara fyrir fólk að láta sér standa á sama um þig ef það skilur að þú ert manneskja.“

INNskráning

Nýskráning