Guðbergur 2009

Bók Birnu um Guðberg gefin út vestra

Holdið hemur andann, doktorsritgerð Birnu Bjarnadóttur um skáldskap og fagurfræði Guðbergs Bergssonar, kemur út í haust á ensku á vegum kanadíska forlagsins McGill-Queen’s, einni virtustu útgáfu á sviði fræðirita þar í landi. Fréttablaðið ræddi við Birnu af því tilefni og birtist viðtalið nú um helgina.

„Í stuttu máli fjallar þetta um mörk lífs og skáldskapar,“ segir Birna. „Við vitum að Guðbergur er frægur fyrir að vera einn helsti módernisti íslenskra höfunda og hann er sagður vera arftaki Halldórs, Þórbergs og Gunnars í íslenskum nútímabókmenntum. En það sem ég gerði mér smám saman grein fyrir eftir að ég ákvað að skrifa doktorsritgerð um fagurfræði Guðbergs er að hann er ekki síður mikilhæft tilvistarskáld.“

Birna segist hafa í rannsóknum sínum ratað inn á ákveðna slóð sem sé gegnumgangandi í verkum Guðbergs.

„Og þessi slóð er í rauninni hjartað í heimsbókmenntunum og einnig rauði þráðurinn í vestrænni frásagnarhefð, í rauninni tilvistarsaga mannkyns.Guðbergur er auðvitað alltaf í samræðu við okkur, þjóð sína; hún á sér stað á þessu landi, hún er við okkur og hún fjallar um íslenskt samfélag og sögu þess. En þetta gerir hann með hliðsjón af tilvistarsögunni og hvernig okkur þá sem manneskjum reiðir hreinlega af í lífinu. Þetta er rauði þráðurinn og út af því fór þetta ferðalag mitt að spanna aldir, því Guðbergur er að rekja aldagamla sögu um tilraunina að vera manneskja.“

Birna varði ritgerðina við Háskóla Íslands árið 2003. Sama ár sigldi hún vestur um haf og fékk stöðu við íslenskudeild Háskólans í Manitoba. Fljótlega eftir að út var komið fór hún að svipast um eftir þýðanda til að snara doktorsritgerðinni yfir á ensku. Það gekk eftir en þýðingin tók sinn tíma. Í fyrravor var hún hins vegar komin með endanlega útgáfu þýðingarinnar í hendurnar og sendi hana til McGill-Queen?s, sem sérhæfir sig í útgáfu ritrýndra fræðirita.

„Þetta er ein af tveimur virtustu útgáfum landsins,“ segir Birna, „og langt því frá öruggt þeir myndu fallast á að gefa bókina út. Ég held hins vegar að það hafi verið okkar gæfa að ritstjórinn sem við lentum á reyndist vera ljóðskáld; það var eins og hann skynjaði nógu fljótt að þarna var eitthvað á ferð sem þessi útgáfa gæti haft áhuga á.“

Við tók strangt ferli, þar sem finna þurfti tvo lesendur til að leggja mat á verkið.

„Það var ekki hlaupið að því, því þeir þurftu ekki aðeins að vera vel að sér um íslenskar bókmenntir og menningu heldur líka í módernisma, evrópskum bókmenntum, exístensíalisma og fagurfræði nútímabókmennta.“

Það tókst og í nóvember síðastliðnum bárust forlaginu umsagnir, sem voru afar jákvæðar.

„Ritstjórinn minn þorði að minnsta kosti að ganga svo langt að segja að það kæmi honum á óvart ef verkið yrði ekki samþykkt til útgáfu og í janúar fékk ég loksins jáyrði um að bókin kæmi út í haust og skrifaði undir útgáfusamning.“

Í umsögnum ritrýna verksins kemur fram að Guðbergur sé mikilhæft skáld og hafi margt fram að færa til að dýpka skilning manna á módernísku skáldsögunni, en verk hans séu lítt þekkt utan heimalandsins þar sem hann skrifi á litlu málsvæði.

„Það má kannski segja að það sé bæði gæfa Guðbergs og ógæfa að skrifa á íslensku. Hann er höfundur á heimsmælikvarða sem skrifar á máli sem fáir tala“ segir Birna, sem kveðst gera sér miklar vonir um að útgáfa bókarinnar verði til þess að Guðbergur verði loksins „uppgötvaður“. Það hefði auðvitað átt að gerast fyrir löngu. Eitt er víst að hann á það skilið.““

INNskráning

Nýskráning