Hér á heimasíðu Forlagsins má nú finna á annað þúsund titla af allra handa bókum. Þeir sem vilja spara sér sporin geta auðveldlega verslað bækurnar beint af síðunni því kaupaferlið á nýju heimasíðunni er afar einfalt og notendavænt. Bækurnar eru sendar af stað tveimur dögum eftir pöntun og þegar eru fjölmargar þeirra að detta inn um lúguna hjá tilvonandi lesendum sínum. Það er jú talsvert skemmtilegra að fá góða bók inn á forstofugólfið heldur en gluggaumslög – eða hvað? Kynntu þér úrvalið!