Gerður Kristný hlaut um helgina ljóðaverðlaun úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar skálds frá Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurðardóttur konu hans. Verðlaunin voru afhent við fallega athöfn í Snorrastofu í Reykholti að viðstöddu fjölmenni. Á sama tíma voru Borgfirsku menningarverðlaunin afhent og komu þau í hlut Sögufélags Borgfirðinga. Veitt er úr Minningasjóðnum á tveggja ára fresti.
Við athöfnina fór Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri með ljóð eftir nafnana Guðmund Inga Kristjánsson frá Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði og Guðmund Böðvarsson skáld frá Kirkjubóli í Hvítársíðu. Þá las Steinunn Jóhannesdóttir ljóð eftir Guðmund Böðvarsson. Loks lýsti Böðvar Guðmundsson ljóðaverðlaunum sjóðsins og afhenti Gerði. Ræðu Böðvars má lesa hér.
Þess má geta að þetta hefur verið afar gjöful vika fyrir Gerði Kristnýju því sl. miðvikudag tók hún við Barna- og unglingabókaverðlaunum Vestnorræna ráðsins. Einnig hlaut hún í byrjun ársins Ljóðstaf Jóns úr Vör í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Von er á nýrri ljóðabók eftir Gerði Kristnýju í næsta mánuði.