Fjölmiðlar hafa undanfarna daga fjallað mikið um skrif Vilborgar Davíðsdóttur rithöfundar á netinu um alvarleg veikindi eiginmanns síns, Björgvins Ingimarssonar, enda eru þau svo opinská og einlæg að þau brjóta blað í opinberri umfjöllun um þetta efni.
Flestir forðast að ræða um dauðann og Vilborg ræðir til dæmis um þá hræðilegu hlið á að missa ástvin að margir vinir og kunningjar hætta að hafa samband af því þeim finnst svo óþægilegt að tala um hinn látna. „Jafnvel getur óttinn við að segja óviljandi eitthvað ,,óviðeigandi“ og særa aðra getur orðið til þess að hinn látni er sjaldan eða aldrei nefndur á nafn að erfidrykkjunni lokinni, næstum eins og hann hafi ekki verið til. Og það held ég að sé sárast af öllu.“ En Vilborg á gott ráð handa okkur öllum: „Við getum ekki ráðið því hvenær dauðinn sækir okkur heim. En við getum ráðið því hvernig við bregðumst við komu hans, hvort sem það erum við sjálf sem finnum hann nálgast eða ástvinir okkar. Sorgin yfir aðskilnaðinum við ástvin er þung og þau sem standa í kring fyllast vanmætti yfir því að geta ekki breytt því sem er óumflýjanlegt.
Raunin er sú samt sem áður að við búum öll yfir mætti kærleikans og hann getum við notað til þess að hjálpa þeim sem syrgja. Tölum um þau sem eru farin, hvað gerðist, hvernig þau lifðu og hvernig þau dóu. Látum þau þannig lifa áfram í minningu okkar og hjarta þótt þau hafi siglt á braut.“ Í viðtali við DV viðurkennir Vilborg að hún sé dálítið undrandi því hversu sterk viðbrögð bloggið hennar hefur vakið. „Hún telur það merki um að mörgum finnist, líkt og henni sjálfri, rétt og gott að tala um dauðann, hinn óumflýjanlega endi sem bíði okkar allra.“ Slóðin að bloggi Vilborgar er þessi: http://vilborgd.blogspot.com/2013/02/i-hverfulleika-lifsins-er-gildi-ess-fali.html