Danska forlagið Vandkunsten hefur tryggt sér útgáfuréttinn á rómaðri ljóðabók Gerðar Kristnýjar, Blóðhófni, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki skáldverka árið 2010. Sjaldgæft er að íslenskar ljóðabækur komi út hjá erlendum forlögum en Vandkunsten er afar virt í útgáfuheiminum og gefur m.a. út Dylan Thomas, Franz Kafka og Vladimir Nabokof.
En þó er ekki allt talið því forlagið hyggst einnig gefa út geysivinsæla barnabók Gerðar, Garðinn, sem bóksalar völdu bestu barnabók ársins 2008 auk þess sem Garðurinn hlaut Vest-Norrænu barnabókaverðlaunin árið 2010. Garðurinn hefur þegar verið seldur til Noregs og Þýskalands, þar sem áhuginn var svo mikill að efna þurfti til uppboðs og stórfyrirtækið Bloomsbury hreppti hnossið að lokum. Auk þess hefur Pegasus tryggt sér kvikmyndarétt bókarinar.
Báðar bækurnar munu koma út hjá Vandkunsten í haust í þýðingu Eriks Skyum-Nielsen. Gerður er einmitt nýkomin frá Kaupmannahöfn þar sem hún las upp úr þýðingu Eriks á ljóðahátíð þar í borg. Fleiri upplestrar eru fyrirhugaðar hjá Gerði úti í hinum stóra heimi þetta árið, m.a. í Þýskalandi, Noregi, Wales og Kína.