Sigrún Eldjárn

Bjartsýnn höfundur

Það ríkir víða bjartsýni og gleði í bókum Sigrúnar Eldjárn og því er einkar ánægjulegt að hún hljóti Íslensku bjartsýnisverðlaunin í ár.  Formaður dómnefndar er Vigdís Finnbogadóttir en forseti Íslands og verndari verðlaunanna, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti  Sigrúnu verðlaunin, áletraðan verðlaunagrip úr áli og verðlaunafé að upphæð 1 milljón króna. Aðrir í dómnefndinni eru Rannveig Rist, Sveinn Einarsson og Örnólfur Thorsson.

Fá menningarverðlaun hér á landi eiga sér lengri sögu en Íslensku bjartsýnisverðlaunin. Þau voru fyrst afhent árið 1981 og voru þá kennd við upphafsmann sinn, danska athafnamanninn Peter Bröste. Þegar Peter dró sig í hlé skoraði hann á íslensk fyrirtæki að halda verðlaununum við og hefur Alcan á Íslandi hf. verið bakhjarl þeirra frá árinu 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari þeirra.

Sigrún Eldjárn útskrifaðist frá grafíkdeild Myndistar- og handíðaskóla íslands árið 1977. Sigrún starfar bæði sem myndlistarmaður og rithöfundur. Á ferli sínum hefur hún ritað og myndskreytt fjölmargar barnabækur, skrifað handrit fyrir sjónvarp, myndskreytt bækur annarra rithöfunda, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði innan lands og utan. Sigrún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, meðal annars Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar og skólamálaráðs, Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur, Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin, og tilnefningu til H.C. Andersen-verðlauna fyrir ritstörf og myndskreytingar.  Árið 2008 var Sigrún sæmd riddarkrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar barnamenningar.


INNskráning

Nýskráning