Kroppurinn er kraftaverk

Kroppurinn er kraftaverk til Danmerkur

Eftir æsispennandi uppboð er forlagið Turbine í Árósum (turbineforlaget.dk) búið að festa sér útgáfurétt á dönsku á Kroppurinn er kraftaverk eftir þær stöllur Sigrúnu Daníelsdóttur, sem skrifaði texta bókarinnar, og Björku Bjarkadóttur sem myndskreytti. Eins og alþjóð veit kom bókin út í vor en réttindastofa fór rakleiðis með hana á bókastefnuna í Bologna þar sem hún vakti mikla lukku. Bókin hefur þó ekki aðeins slegið í gegn erlendis heldur hefur glatt og frætt fjölmarga hér heima, hlotið frábæra dóma og setið í efstu sætum metsölulista svo vikum skiptir.

Auk þess að gefa bókinni fjóra og hálfa stjörnu fór Kristjana Guðbrandsdóttir, gagnrýnandi hjá DV, þessum fögru orðum um bókina:

„Bókin, Kroppurinn er kraftaverk, er kærkomin handa foreldrum sem vilja efla sjálfsvirðingu barna sinna, styðja þau til heilbrigðis og velferðar óháð líkamsvexti … Ég veit ekki um neina íslenska bók sem gerir þessu þarfa efni skil og finnst hún bæði nauðsynleg og kærkomin viðbót. Það er ástæða til að bæði þakka og óska höfundi til hamingju með þessa bók.“

Kroppurinn er kraftaverk er skemmtileg bók sem kennir börnum að þykja vænt um líkama sinn, hugsa vel um hann og bera virðingu fyrir líkömum annarra. Og þetta mikilvæga veganesti fá nú dönsk börn tækifæri til að taka með þér út í lífið!

INNskráning

Nýskráning