Birgitta Sif Jónsdóttir hlýtur Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin í ár fyrir bók sína Ólíver. Birgitta Sif býr erlendis og tók móðir hennar, Ragnheiður Guðmundsdóttir, við verðlaununum fyrir hennar hönd við hátíðlega athöfn í Gerðubergi í gær, sunnudag.
Dómnefndina skipuðu að þessu sinni Halldór Baldursson, Kalman le Sage de Fontenay og Aðalsteinn Ingólfsson sem rökstuddi val dómnefndarinnar með þessum orðum:
Við erum hingað komin til að gleðjast með höfundi barnabókar sem við teljum vera þá bestu á sýningunni og verðskulda þar með Dimmalimm-verðlaunin fyrir 2012. Þetta er bókin Ólíver eftir Birgittu Sif Jónsdóttur, gefin út af Forlaginu. Útgáfusaga þessarar bókar er óvenjuleg, a.m.k. í íslensku samhengi, því hún er þegar komin út hjá bresku forlagi, Walker Books Ltd. Höfundur texta og mynda, Birgitta Sif, hefur verið við nám og störf í Bretlandi, og bók hennar hefur til að bera ýmsa kosti breskra barnabóka: sérviskulega persónusköpun, vandaðar vettvangsteikningar, þar sem meira er lagt upp úr ljóðrænum stemmningum en ágengu litrófi, og kímni sem er í senn góðlátleg og fjarstæðukennd. Einföldum boðskap bókarinnar – „maður er manns gaman“ – eða kannski „sækjast sér um líkir“, er ekki þröngvað upp á lesendur heldur rennur hann smám saman upp fyrir þeim.
Dimmalimmverðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2003 og venju samkvæmt má sjá úrval þeirra myndskreytinga sem lagðar eru fram til verðlaunanna á veggjum Gerðubergs á sýningunni Þetta vilja börnin sjá. Að þessu sinni er sérlega vel búið að sýningunni á 2. hæð menningarmiðstöðvarinnar og full ástæða fyrir unga sem aldna að bregða sér í Breiðholtið og skoða myndir og bækur.