Biblían, höfuðtrúarrit kristinna manna og sú bók sem mest hefur mótað vestræna menningu, er nú fáanleg í fallegri kiljuútgáfu. Markmið hennar er að gera texta Biblíunnar sem aðgengilegastan flestum – ekki síst ungu fólki og öðrum sem vilja kynna sér boðskap hennar og sögu. Nýja útgáfan er tæpar 1900 síður en í afar léttu og þægilegu broti sem fer vel í hendi.
JPV útgáfa gefur Biblíuna út í samstarfi við Hið íslenska Biblíufélag sem annast hefur útgáfu íslenskra Biblía frá árinu 1815.