Samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birt var í helgarblaði þess á Forlagið bæði besta bókartitilinn og þann versta á vertíðinni. Þar að auki komu Forlagsbækur í annað, þriðja og og fimmta sæti yfir bestu titlana.
Það var Doris deyr, smásagnasafn Kristínar Eiríksdóttur, sem fór með sigur af hólmi í baráttunni um besta titilinn en í öðru til þriðja sæti voru Blóðhófnir Gerðar Kristnýjar og Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenny Alexson eftir Braga Ólafsson. Í fimmta sæti var svo Ég sé ekkert svona gleraugnalaus, smásögur Óskars Magnússonar.
Vesti titillinn var valinn Martröð millanna, glæpasaga Óskars Hrafns Þorvaldssonar …