Að venju settust spekingar yfir bókakápur ársins og völdu þær sem þeim þóttu bestar og verstar en niðurstöðurnar eru birtar í Fréttatímanum í dag. Besta kápan að þeirra mati er sú sem einnig ber einn af lengstu titlum ársins: Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson eftir Braga Ólafsson. Um hana segir Stefán Snær Grétarsson, teiknistofustjóri á Fíton: „Þessi kápa lýsir glimrandi sjálfstrausti og kallar á að bókin verði lesin. Til þess eru bókarkápur.“ Kápuna gerir Sigrún Pálsdóttir, eiginkona Braga, en naut aðstoðar Egils Baldurssonar hönnuðar við frágang. Rithöndina framan á bókinni á enginn annar en Einar Örn Benediktsson, félagi Braga úr Sykurmolunum.
Sigrún gerir jafnframt kápuna á sína eigin bók, Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar, en hún er ein af þeim kápum sem átitsgjafarnir nefna sérstaklega fyrir góða hönnun. Kápurnar á bókum Braga eftir Sigrúnu hafa áður hlotið eftirtekt og aðdáun. Meðal annars var kápan á síðustu skáldsögu hans, Sendiherranum, valin kápa ársins árið 2006.