Ríkissjónvarpið hefur hafið sýningar á norskri þáttaröð byggðir á metsölubókum Anne B. Ragde. Serían heitir eftir fyrstu bókinni í Neshov-seríunni svokölluðu og nefnist Berlínaraspirnar en þættirnir hafa notið mikilla vinsælda víða um Skandinavíu.
Það eina sem Neshov-fjölskyldan á sameiginlegt er bújörðin. En það er heldur ekki svo lítið.
Neshov-bræðurnir þrír hittast í fyrsta skipti í mörg ár við banabeð móður sinnar. Yngsti bróðirinn, Erlend, vinnur við gluggaútstillingar í Kaupmannahöfn. Margido á litla útfararstofu í Þrándheimi og elsti bróðirinn, Tor, er bóndi á fjölskyldubýlinu í nágrenni Þrándheims. Torunn er óþekkt dóttir Tors sem hittir fjölskylduna fyrst þegar amma hennar veikist.
Fundur þeirra við sóttarsæng gömlu konunnar reynist örlagaríkur fyrir þau öll. Tilfinningar sem þau héldu að væru löngu gleymdar og grafnar dúkka aftur upp og nýjar kenndir vakna þegar hulunni er svipt af ljótum leyndarmálum.
Leikstjórar eru Anders T. Andersen og Sirin Eide og meðal leikenda eru Nils Sletta, Espen Skjønberg, Bjørn Sundquist, Jon Øigarden, Andrine Sæther og Morten Rose.
Berlínaraspirnar unnu Prix Italia verðlaunin á Sikiley, voru tilnefndar til þrennra verðlauna á norsku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunahátíðinni og Nils Sletta sem leikur Tor var tilnefndur til alþjóðlegu Emmy-verðlaunanna.