hungurleikar kvikmynd

Beitt vopn í baráttu fyrir læsi unglinga

Spennubókin Hungurleikarnir sem nú situr í toppsæti metsölulista Eymundsson í flokki barna- og unglingabóka fær fjórar stjörnur hjá Páli Baldvini í Fréttatímanum í dag. En eins og Páll Baldvin bendir svo réttilega á í umfjöllun sinni er bókin ekki eingöngu fyrir unglinga heldur ungt fólk á öllum aldri – já og foreldrana líka.

Hungurleikarnir er fyrsta bókin í þríleik og segir Páll Baldvin bókina vera „hugvitsamlega samið verk, sannfærandi í skemmtun og afþreyingu“ og bætir því við að þetta sé „saga sem á undir öllum kringumstæðum að vera beitt vopn í baráttu fyrir læsi unglinga á öllum aldrei; afþreying fyrir páskalestur, sumargjöfin í ár, lesefni fyrir alla í fjölskyldunni.“

Hungurleikarnir hafa átt gríðarlegum vinsældum að fagna í Bandaríkjunum og hafa allar bækurnar þrjár setið á metsölulistum þar ytra. Kvikmynd byggð á fyrstu bókinni kemur í kvikmyndahús í lok mars og því um að gera að næla sér í eintak af bókinni áður en skundað verður í bíó.

INNskráning

Nýskráning