Beint í toppsætið

Bókin Ísland ehf. þaut beint í toppsæti metsölulista Eymundsson þessa vikuna og er einnig vinsælasta bókin í vefverslun Forlagsins. Í bókinni fjalla blaðamennirnir Magnús Halldórsson og Þórður Snær Júlíusson um hrókeringar íslenskra viðskiptablokka í og eftir hrun. Kortlagning þeirra er á köflum ískyggilegur lestur en afar upplýsandi og þarfur fyrir allan almenning í landinu. Vilt þú vita hverjir eignast Ísland? Kynntu þér málið. 

INNskráning

Nýskráning