Barney

Batnar við hvern lestur

Það féllu mörg falleg orð í Kiljunni í gær þegar Egill Helgason spjallaði við Fríðu Björk Ingvarsdóttur og Þröst Helgason um nýja ljóðabók Sigurlínar Bjarneyjar Gísladóttur, Bjarg.

Egill benti á í kynningu að bókin fjallaði um fólk í blokk og bætti við að þetta væri „býsna skemmtileg ljóðabók“ og minnti jafnvel á Þorpið eftir Jón úr Vör. Undir það tók Fríða BjörK í skemmtilegri og markvissri greiningu: „Já, hún er skrifuð inn í þetta form og ég er ekki að tala um ljóðform heldur beinlínis byggingaform, blokk; það er eitt ljóð fyrir hverja íbúð. Og það verður til þessi þverskurður af íslensku samfélagi sem er mjög skemmtilegur og minnir á Þorpið og líka kannski Valeyrarvalsinn eftir Guðmund Andra.“ Fríða Björk tæpti á „söguþræðinum“ í bókinni sem hún vildi ekki gefa of mikið upp um og hélt svo áfram: „Það sem henni tekst með þessum þverskurði er að sýna fólk á öllum aldri, og hún er ekki bara að fjalla um borgarsamfélagið, náttúran kemur líka gegnum reynslu þessa fólks. Því þetta er fólk af öllu tagi. … Mér finnst þetta mjög fallega gert. Þetta er markviss bók, það er falleg hrynjandi í henni og hún segir mjög stóra sögu og vísar langt út fyrir sig. Og eins og oft er með góðar ljóðabækur þá batnar hún við hvern lestur. Verður skemmtilegri.“

Þröstur Helgason tók undir orð Fríðu: „Þetta er flott bók, skemmtilegur þverskurður af þjóðfélaginu og margir minnisstæðir karakterar.“

INNskráning

Nýskráning