Jólalestur

Barnabókadagur í Iðu á laugardag

Bókabúðin Iða býður barnabókaskáldkonum í heimsókn til sín laugardaginn 17. desember. Höfundarnir munu kynna og lesa upp úr verkum sínum, spjalla við gesti og árita. Fyrsti upplesturinn hefst klukkan 13.00 og munu upplestrarnir standa yfir í u.þ.b. klukkustund.

Þeir höfundar frá Forlaginu sem verða á svæðinu eru Bryndís Björgvinsdóttir (Flugan sem stöðvaði stríðið), Kristín Helga Gunnarsdóttir (Ríólítreglan), Jónína Leósdóttir (Upp á líf og dauða), Sigrún Eldjárn (Náttúrugripasafnið), Arndís Þórarinsdóttir (Játningar mjólkurfernuskálds), Eva María Jónsdóttir (Dans vil ég heyra) og Sigríður Eyþórsdóttir, móðir Bergljótar Arnalds, mun mæta í hennar stað og lesa upp úr barnabókinni Íslensku húsdýrin og Trölli.

Hugguleg lestrarstund í amstri aðventunnar.

INNskráning

Nýskráning